Fyrsta Selmessa haustsins sunnudaginn 6. sept. kl. 13
Nk. sunnudag verður aftur messað í Kirkjuselinu. Messan hefst kl. 13 og sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Vox Populi syngur gospel undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar.
Fermingarbarnamessa í Grafarvogskirkju sunnudaginn 6. september
Nk. sunnudag verða væntanleg fermingarbörn úr Kelduskóla Vík og Vættaskóla Engi boðin velkomin í messu kl. 11 í Grafarvogskirkju. Á eftir verður stuttur kynningarfundur fyrir fermingarbörn og foreldra, þar sem dregið verður um fermingardaga vorsins [...]
Messa sunnudaginn 30 ágúst kl. 11
Séra Frank M. Halldórsson prédikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar syngur. Kirkjukaffi eftir messu. Velkomin!
Tímasetningar á barna- og unglingastarfi
Sunnudagaskólarnir hefjast 6. september í Grafarvogskirkju kl.11:00 og í Kirkjuselinu í Spöng (Borgir) kl.13:00. Almennt barna- og unglingastarf hefst síðan mánudaginn 7. september og verður vikulega sem hér segir: 6-9 ára í Grafarvogskirkju fimmtudaga kl. [...]
Skráning í fermingarfræðsluna er hafin
Fermingarfræðslan í Grafarvogssöfnuði hefst vikuna 8 – 11. september og mikilvægt er að öll fermingarbörn skrái sig í fermingarfræðsluna með þeim bekk sem þau vilja sækja tíma. Samverur fyrir fermingarbörn úr Rimaskóla, Vættaskóla og Kelduskóla verða [...]
Í dag
Viltu láta skíra?

Velkomið er að láta skíra barnið í guðsþjónustum í kirkjunni eða Kirkjuselinu alla sunnudaga.
Skírnin er foreldrum að kostnaðarlausu presturinn sem leiðir messuna þann daginn skírir.
Skírnir eru bókaðar í síma 5879070 eða í samráði við presta kirkjunnar.
Bein leið
Skráning í Þjóðkirkjuna
Það er auðvelt að skrá sig í Þjóðkirkjuna. Smelltu hér til þess að fá nánari upplýsingar. Hægt er að fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár rafrænt.
