Ath. byrjar ekki fyrr en 3. október.
Djúpslökun er í boði í Grafarvogskirkju á fimmtudögum kl. 17:00. Fyrsti tíminn verður 3. október 2019
Tímarnir hefjast á léttum æfingum til að undurbúa líkamann fyrir djúpa og góða slökun með kristilegu ívafi. Tímarnir henta bæði þeim sem eru byrjendur í yoga og þeim sem eru lengra komin. Tímana leiðir Aldís Rut Gísladóttir guðfræðingur og yogakennari.
Tímarnir eru gjaldfrjálsir og öll þau sem áhuga hafa eru velkomin.