Útihelgistund laugardaginn 30. maí
Útihelgistund í garðinum við Eirborgir laugardaginn 30. maí kl. 11.30 Prestur: Sr. Vigfús Þór Árnason Söngur: Söngvinir Grafarvogskirkju Organisti: Hákon Leifsson
Vorferð barnastarfsins og sumarfrí
Börnunum sem hafa sótt barnastarfið í Grafarvogskirkju í vetur var boðið að koma með í óvissuferð síðastliðinn þriðjudag. Ferðinni var heitið í Vatnaskóg og þar mikið fjör. Við fórum meðal annars í skógarferð, út á mótorbát og í hoppukastala svo eitthvað sér nefnt. Og að lokum fengum við síðan pítsu í kvöldmat áður en haldið var aftur heim. Ferðin heppnaðist mjög vel og var einstaklega skemmtileg. Við erum þakklát fyrir öll þau börn sem hafa sótt starfið í vetur og óskum við þeim gleðilegs sumar.
Nú er hefðbundna barnastarfið í Grafarvogskirkju komið í sumarfrí en starfið hefst aftur í september. Hægt er að fylgjast nánar með því hér á heimasíðunni þegar nær dregur.
Hátíðarguðsþjónusta á Hvítasunnudag
Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju á Hvítasunnudag kl. 11:00. Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur prédikar og þjónar ásamt þeim Þóru Björgu Sigurðardóttur guðfræðinema og æskulýsðfulltrúa kirkjunnar og sr. Sigurði Grétari Helgasyni. Ritningarlestra lesa Ingibjörg Sigurþórsdóttir og Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson. [...]
Siglfirðingamessa í Grafarvogskirkju 17. maí
Siglfirðingamessa Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju 17. maí 2015 Prestur: Séra Vigfús Þór Árnason Ræðumaður: Ólafur Nilsson lögg. endursk. Kór: Kór Grafarvogskirkju Einsöngur: Fjóla Nikulásdóttir Undirleikari: Gunnsteinn Ólafsson Organisti: Antonía Hevesi Ritningarlestur: Hólmfríður Ólafsdóttir djákni og Snævar Jón Andrésson guðfræðinemi Meðhjálpari: Hermann [...]
Dagur eldri borgara uppstigningardag
Til Grafarvogsbúa, 67 ára og eldri Dagur eldri borgara uppstigningardagur 14. maí í Grafarvogskirkju kl. 14.00 Uppstigningardagur sem tileinkaður hefur verið eldri borgurum, verður haldinn hátíðlegur í kirkjum landsins. Hátíðarguðsþjónusta verður í Grafarvogskirkju kl. 14.00 Séra Arna [...]
Í dag
Viltu láta skíra?

Velkomið er að láta skíra barnið í guðsþjónustum í kirkjunni eða Kirkjuselinu alla sunnudaga.
Skírnin er foreldrum að kostnaðarlausu presturinn sem leiðir messuna þann daginn skírir.
Skírnir eru bókaðar í síma 5879070 eða í samráði við presta kirkjunnar.
Bein leið
Skráning í Þjóðkirkjuna
Það er auðvelt að skrá sig í Þjóðkirkjuna. Smelltu hér til þess að fá nánari upplýsingar. Hægt er að fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár rafrænt.
