Útvarpsmessa og íhugunarguðsþjónusta
Útvarpsmessa í Grafarvogskirkju sunnudaginn 19. mars kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari. Jónína Ólafsdóttir guðfræðinemi flytur lokaprédikun sína frá guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Vox Populi og Kammerkór Suðurlands syngja undir stjórn [...]
Messur sunnudaginn 12. mars
Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hefur Þóra Björg og undirleikari er [...]
Þingmenn lesa Passíusálmana
Eins og undanfarin ár verða Passíusálmarnir lesnir í Grafarvogskirkju alla virka daga kl. 18. Lestranir bera yfirskriftina „Á leiðinni heim“ og eru það þingmenn og ráðherrar sem lesa sálmana. Komdu við hjá okkur og eigðu hátíðlega stund í kirkjunni á leiðinni heim.
Skoða yfirlit yfir lesara
Fermingarfræðsla á laugardaginn
Laugardaginn 4.mars verður fermingarfræðsla fyrir fermingarbörn Grafarvogskirkju á milli kl. 9-13. Í upphafi fræðslunnar verður helgistund og að henni lokinni verður skipt í hópa þar sem fermingarbörnin fá að upplifa ýmislegt skemmtilegt og spennandi. Í [...]
Forsætisráðherra Íslands les fyrsta Passíusálm Hallgríms á öskudaginn
Á öskudaginn kl. 18:00 mun forsætisráðherra Íslands, Bjarni Benediktsson, lesa fyrsta Passíusálm Hallgríms Péturssonar og Hákon Leifsson, organisti, leikur á píanó. Alþingismenn og ráðherrar munu síðan lesa einn Passíusálm hvern virkan dag á föstunni eða [...]
Í dag
Viltu láta skíra?

Velkomið er að láta skíra barnið í guðsþjónustum í kirkjunni eða Kirkjuselinu alla sunnudaga.
Skírnin er foreldrum að kostnaðarlausu presturinn sem leiðir messuna þann daginn skírir.
Skírnir eru bókaðar í síma 5879070 eða í samráði við presta kirkjunnar.
Bein leið
Skráning í Þjóðkirkjuna
Það er auðvelt að skrá sig í Þjóðkirkjuna. Smelltu hér til þess að fá nánari upplýsingar. Hægt er að fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár rafrænt.
