Hér er hægt að fylgjast með aftansöng jóla í Grafarvogskirkju.

Prestar kirkjunnar þjóna, sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar. Organisti er Hákon Leifsson, Kór kirkjunnar syngur, Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur einsöng. Auður Hafsteinsdóttir annast fiðluleik og Gunnhildur Einarsdóttir leikur á hörpu.

 

Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd Grafarvogskirkju óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og Guðs blessunar á nýju ári. Megi jólin verða ykkur blessunarrík og gleðirík hátíð með ástvinum ykkar. Við hlökkum til samverustunda með ykkur á komandi ári!