Hátíðarguðsþjónusta nýársdags verður í streymi á heimasíðu kirkjunnar grafarvogskirkja.is kl. 14:00. Það er einnig hægt að fylgjast með Guðsþjónustunni á Facebooksíðu kirkjunnar.

Prestar kirkjunnar þjóna. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir prédikar. Kór Vox Populi mun syngja. Björg Þórhallsdóttir syngur einsöng. Organist er Hilmar Örn Agnarsson.

Kristín Lárusdóttir leikur á selló og flautuleikari verður Björg Brjánsdóttir.

Gleðilegt nýtt ár!