Prjónamessa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson. Prjónafólk er velkomið að mæta með prjónana!

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Nýtt og skemmtilegt sunnudagaskólaefni. Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir stjórna og Stefán Birkisson sér um undirleik.

Selmessur hefjast á ný eftir sumarfrí! Það verður Selmessa í Kirkjuselinu í spöng kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.