Alla þriðjudaga kl. 12:30 yfir vetrarmánuðina eru fyrirbæna- og kyrrðarstundir í Kirkjuseli, Borgum Spönginni. Altarisganga, tónlist og fyrirbænir eru einkennandi fyrir þessar stundir, sem eru í senn stuttar og innihaldsríkar. Tekið er á móti fyrirbænaefnum í síma 587-9070 eða með tölvupósti til presta eða ritara kirkjunnar.
,,Verið ætíð glöð. Biðjið án afláts.” (1.Þess. 5.16-17).
