Með því að gerast hollvinur Grafarvogskirkju tekur þú þátt í að efla kirkjuna til framtíðar. Framlög hollvina fara beint í viðhald kirkjunnar og endurnýjun á húsbúnaði og tækjum.
Rekstur Grafarvogskirkju hefur orðið erfiðari með hverju árinu þar sem sóknargjöld haldast ekki í hendur við verðlag og launaþróun með þeirri afleiðingu að viðhald og endurnýjun á húsbúnaði og tækjum hefur setið á hakanum síðustu ár. Því leitum við til hollvina Grafarvogskirkju og treystum á þig til að aðstoða okkur við að halda kirkjunni okkar við.
Hér getur þú skráð þig sem hollvinur Grafarvogskirkju.
Hollvinir greiða mánaðarlega upphæð til kirkjunnar að eigin vali. Ef þú vilt greiða aðrar upphæði en þá sem hæg er að velja um er hægt að setja þá upphæð í reitinn „Annað“, ekki gleyma að taka fram hvort það sé eingreiðsla eða mánaðarleg greiðsla.
Grafarvogssókn er á almannaheillaskrá. Það þýðir að öll framlög til kirkjunnar á bilinu kr. 10.000 – 300.000 eru frádráttabær frá skattstofni gefanda.

Hægt er að skrá sig af listanum hvenær sem er með því að senda tölvupóst á grafarvogskirkja@
Frjáls framlög
Kennitala 520789-1389
Reikningsnúmr 0357-22-002445