Fréttir

Messa sunnudaginn 2. júlí

By |2017-06-29T12:05:22+00:0029. júní 2017 | 12:01|

Messað verður í Grafarvogskirkju sunnudaginn 2. júlí kl. 11.00. Séra Grétar Halldór Gunnarsson predikar og þjónar fyrir altari. Meðlimir úr kór Grafarvogskirkju syngja og organisti er Hákon Leifsson. Í athöfninni verður Kristófer Róbert Magnússon fermdur.

Fyrsta kaffihúsaguðsþjónusta sumarsins!

By |2017-06-23T10:43:36+00:0022. júní 2017 | 10:46|

Á sunnudaginn verður kaffihúsaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11. Þessar guðsþjónustur voru mjög vinsælar í fyrrasumar, en þá býðst kirkjugestum að sitja saman við borð, drekka kaffi og gæða sér á veitingum á meðan guðsþjónustan fer [...]

Jónsmessunæturprjón í kirkjunni

By |2017-06-19T21:19:17+00:0019. júní 2017 | 21:19|

Prjónahópur kirkjunnar hittist á fimmtudagskvöldið kl. 20:00 í sófahorni kirkjunnar. Þar ætlum við að spjalla, dást að verkum annarra, deila reynslu okkar og skemmta okkur vel. Komdu með prjónana, snarl og góða skapið! Allir velkomnir.  Það [...]

Prjónað á almannafæri

By |2017-06-09T12:34:54+00:009. júní 2017 | 12:34|

"Prjónað á almannafæri"- Dagurinn verður haldinn 10. júní kl. 13 - 16 í Grafarvogskirkju á gamla bókasafninu (á neðri hæðinni). Aðstaða fyrir prjónara er bæði útí á grasinu með útsýni yfir Grafarvoginn og inní, ef [...]

Sjómannadagurinn í Grafarvogskirkju

By |2017-06-07T11:47:24+00:007. júní 2017 | 11:47|

Guðsþjónusta kl. 11:00 á Sjómannadaginn í Grafarvogskirkju. Helgistund við naustið/bátalægi fyrir neðan kirkjuna kl. 10:30. Félagar úr Björgunarsveitinni Ársæli sigla inn Grafarvoginn og taka þátt í helgistundinni. Árni Bjarnason formaður Skipstjórnarmanna á Íslandi flytur hugvekju, [...]

Hvítasunnudagur 4. júní

By |2017-06-01T13:04:15+00:001. júní 2017 | 10:28|

Guðsþjónusta verður í Grafarvogskirkju á Hvítasunnudag 4. júní kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari. Stefanía Steinsdóttir meistaranemi í guðfræði prédikar. Tvö börn verða borin til skírnar. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er [...]

Sunnudagurinn 28. maí

By |2017-05-26T12:41:23+00:0026. maí 2017 | 12:40|

Sunnudaginn 28. maí verður ferming í messu kl. 11:00. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Fermingarbarn dagsins heitir Jóel Ýrar Kristinsson. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

Go to Top