Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi bjóða nýja félaga velkomna!

Kór Grafarvogskirkju er hefðbundinn blandaður kór (SATB) með meðlimi á öllum aldri. Stjórnandi kórsins er Guðný Einarsdóttir og æfingar eru á miðvikudögum kl. 19:30-21:30 í Grafarvogskirkju. 

Viðfangsefni kórsins eru fjölbreytt og spanna allt frá sálmasöng og hefðbundinni kirkjutónlist til Jesus Christ Superstar.

Meginhlutverk kórsins er að syngja við guðsþjónustur í Grafarvogskirkju og koma fram á tónleikum og við önnur tækifæri innan safnaðarins. Auk þess að syngja við helgihaldið fer kórinn reglulega í æfingabúðir, kórferðir og heldur tónleika.

Flestir kórfélagar nota spjaldtölvur í stað pappírs og er forritið Choirmate notað til að halda utan um nótur og mætingar.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi Kórs Grafarvogskirkju geta sett sig í samband við stjórnanda kórsins, Guðnýju Einarsdóttur gudny@grafarvogskirkja.is

 

Vox Populi er blandaður sönghópur með raddskipanina SAB. Stjórnandi kórsins er Lára Bryndís Eggertsdóttir og æfingar eru á miðvikudögum kl. 19:30-21:45 í kjallara Grafarvogskirkju.

Flestir meðlimanna eru undir fertugu, og efnisvalið gjarnan í léttari kantinum. 

Meginhlutverk kórsins er að syngja við guðsþjónustur í Kirkjuseli í Spöng kl. 13 á sunnudögum yfir vetrartímann og koma fram á tónleikum og við önnur tækifæri innan safnaðarins. Að jafnaði syngja um 5-7 kórfélagar við hverja guðsþjónustu, en stærri hópur við hátíðarmessur.

Kórfélagar nota spjaldtölvur í stað pappírs og er forritið Choirmate notað til að halda utan um nótur og mætingar.

Áhugasamir söngvarar geta haft samband við stjórnanda kórsins, Láru Bryndísi lara@grafarvogskirkja.is