Sameiginleg sumarmessa Grafarvogs-, Árbæjar og Guðríðarkirkju verður sunnudaginn 12. júlí kl. 11 við grillskýlið í Gufunesbæ. Prestar safnaðanna leiða helgihaldið. Guðný Einarsdóttir og kór Grafarvogskirkju leiða söng ásamt Brasskvartett. Brasskvartettinn skipa Hekla Sigríður Ágústsdóttir, Jón Hafsteinn Guðmundsson, Jörundur Ingi Ágústsson og Lára Bryndís Eggertsdóttir. Fyrir þau sem vilja verða bílferðir frá Grafarvogskirkju og í Gufunesbæ kl. 10.40 frá Grafarvogskirkju. Kleinur og kaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.