Starfsdagur 18. júní
Á fimmtudaginn 18. júní kl. 17-19 ætlum við að snyrta umhverfi kirkjunnar. Reyndar hafa unglingar frá Borginni og á okkar vegum byrjað verkið. Þá hefur Lára Jónsdóttir sett blóm í ker. Hvort tveggja hefur fegrað aðkomuna að kirkjunni til mikilla muna. En við ætlum að gera aðeins betur á fimmtudaginn. Mætum endilega með eigin verkfæri, hrífur, arfaklórur, fötur, kerru… Á eftir fáum við grillaðar pylsur, gos og gott.