Verið velkomin á gæðastund fjölskyldunnar miðvikudaginn 29. apríl frá 17-18:30. Við skreytum blómapotta og gróðursetjum fræ í þeim og tökum með heim, föndrum blóm, fugla og margt fleira skemmtilegt. Við spilum syngjum og síðast en ekki síst borðum við saman ljúffengan kvöldmat í boði kirkjunnar. Skráning á aldisrut@grafarvogskirkja.is.