Kraftmikill og hugmyndaríkur æskulýðsfulltrúi óskast í Grafarvogskirkju

Grafarvogssókn leitar að hressum og hugmyndaríkum æskulýðsfulltrúa í 50% starfshlutfall frá 1. febrúar 2026.

Æskulýðsfulltrúi,
Skipuleggur barna- og unglingastarf kirkjunnar í samstarfi við presta safnaðarins.
Stýrir sunnudagaskóla, barnastarfi og æskulýðsfélagi.
Tekur þátt í flæðimessum og fjölskyldustundum.
Býr til auglýsingar og efni á samfélagsmiðla og hefur samskipti við foreldra.
Sækir starfsmannafundi einu sinni í viku og hefur umsjón með leiðtogum.

Við leitum að þér ef þú hefur:
Áhuga á að vinna með börnum og unglingum í kirkjustarfi.
Menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi.
Sköpunargáfu og hugmyndaflug.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileika til að vinna í teymi en jafnframt geta unnið sjálfstætt.
Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.

Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2026.
Umsókn og ferilskrá skal senda á póstfangið formadur@grafarvogskirkja.is
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð og verður það kannað hjá þeim sem verður ráðinn í starfið.

Nánari upplýsingar veitir sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur, arna@grafarvogskirkja.is og Anna Guðrún Sigurvinsdóttir, formaður sóknarnefndar, formadur@grafarvogskirkja.is