Við bjóðum ykkur upp á skemmtilega minningartónleika um heiðurshjónin sr. Vigfús Þór Árnason og Elínu Pálsdóttur sem voru frumkvöðlar í kirkjustarfi í Grafarvogi og byggðu upp öflugan söfnuð og lifandi starf í fallegu kirkjunni okkar

Tónleikarnir verða haldnir fimmtudaginn 24. september kl. 20

Fram koma:

Diddú, Gissur Páll, Jóhann Friðgeir, Matti Matt, Kór Grafarvogskirkju, Vox Populi og Frímúrarakórinn.

Stjórnendur: Guðný Einarsdóttir, Lára Bryndís Eggertsdóttir og Jónas Þórir

Allur ágóði af tónleikunum rennur í orgelsjóð kirkjunnar

Kirkjan er á almannaheillaskrá, sem þýðir að gjafir yfir 10.000 kr eru skattfrjálsar.

Miðaverð er 5.500 kr.