Æskulýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Grafarvogskirkju 1. mars kl. 11 með fjölskyldumessu. Dagurinn er tileinkaður börnum og unglingum og verða þau því í forgrunni í messunni. Unglingakór Grafarvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen, undirleikari er Stefán Birkisson. Stundina leiða Árni Þorberg æskulýðsfulltrúi og Anna Bíbí, ungleiðtogarnir Nadia og Helena og Aldís Rut. Nemendur frá Tónskólanum í Reykjavík koma fram. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.