Sunnudaginn 21. september kl. 11:00 verður fermingarbarnamessa og Pálínuboð.

Við bjóðum fermingarbörn vetrarins velkomin!

Fermingarbörn í Víkurskóla og Rimaskóla ásamt forráðamönnum sínum er sérstaklega boðið til þessarar messu og kynningarfundar í kjölfarið.

Við leggjum saman eitthvað á veisluborð sem njótum eftir messu.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Aldís Rut Gísladóttir þjóna.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.

Umsjón hefur sr. Sigurður Grétar Helgason.

Selmessa verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.

Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar.

Vox Populi  leiðir söng.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Ljúf tónlist.