Sunnudaginn 14. september kl. 11:00 verður fermingarbarnamessa og Pálínuboð.

Við bjóðum fermingarbörn vetrarins velkomin!

Fermingarbörn í Foldaskóla og forráðamenn þeirra eru sérstaklega boðið til þessarar messu og kynningarfundar í kjölfarið.

Við leggjum saman eitthvað á veisluborð sem njótum eftir messu.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Sigurður Grétar Helgason þjóna.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.

Organisti er Guðný Einarsdóttir.

Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.

Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni.

Fyrsta Selmessa vetrarins verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Vox Populi  leiðir söng.

Organisti er Guðný Einarsdóttir.

Ljúf tónlist.