Sunnudaginn 1. júní kl. 11:00 verður kaffihúsamessa í Grafarvogskirkju.

Bænastund verður kl. 10:30 við voginn fyrir neðan kirkjuna en þar er Naustið, gamalt bátalægi.

Kaffihúsamessurnar eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11:00 út ágústmánuð.
Messuformið er einfalt og notalegt andrúmsloft. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjónustuna.

Tvö börn verða borin til skírnar í messunni.

Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar.

Félagar úr kór Grafarvogskirkju leiða söng. Orgaanisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Velkomin í kirkju!