Sunnudaginn 2. júní kl. 11:00 verður kaffihúsamessa í Grafarvogskirkju.

Bænastund verður kl. 10:30 við voginn fyrir neðan kirkjuna en þar er Naustið, gamalt bátalægi.

Kaffihúsamessurnar eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11:00 út ágústmánuð.
Messuformið er einfalt og notalegt andrúmsloft. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjónustuna.

Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar.

Félagar úr kórum Grafarvogskirkju leiða söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Velkomin í kirkju!