Kaffihúsamessa verður kl. 11:00

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.

Félagar úr kór Grafarvogskirkju leiða söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Kaffihúsamessur eru sumarmessur

Í sumar verða kaffihúsamessur í Grafarvogskirkju alla sunnudaga kl. 11:00 nema 16. júní en þá verður ferming. Messuformið er einfalt og fallegt, kaffi og meðlæti i boði.

Siglfirðingamessa verður kl. 14:00

Hátíðarræðu flytur Siglfirðingurinn Björn Z. Ásgrímsson. Sr. Vigfús Þór Árnason þjónar ásamt sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur og sr. Kjartani Erni Sigurbjörnssyni.

Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson. Siglfirðingar annast bænalestur.

Siglufjarðarkaffi eftir messu.

Verið öll velkomin!