Vortónleikar Vox Populi, verða fimmtudagskvöldið 16. maí, í Grafarvogskirkju kl. 20.

Við erum svo sannarlega í jazz stuði og í samstarfi við jazzpíanista Íslands, Sunnu Gunnlaugsdóttur, munum við flytja nokkur dásamleg lög eftir hana, ásamt öðrum perlum.

Sunna Gunnlaugs leikur af sinni alkunnu snilld á flygil.

Nico Moreaux leikur ljúfa tóna á kontrabassa og Scott McLemore fremur galdra á trommur.

Kórstjóri og hugmyndasmiður er okkar eina sanna Lára Bryndís Eggertsdóttir.

 

Miðaverð er 3000 kr. Frítt fyrir eldri borgara og 12 ára og yngri. Selt er inn við innganginn á tónleikadaginn.

Endilega takið daginn frá til að upplifa vorandann, geislandi bros og hlýtt í hjartað.