Sunnudaginn 14. apríl kl. 11:00 verður guðsþjónusta kynslóðanna í Grafarvogskirkju.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Barnakór Grafarvogs í Grafarvogskirkju syngur. Stjórnandi er Auður Guðjohnsen.

Vox populi leiðir söng.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Vörðumessa er í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Vox Populi leiðir söng.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Við segjum sögur og hlöðum vörður úr sögunum okkar.

Hugljúf tónlist, kertaljós og máltíð.