Skírdagur í Grafarvogskirkju:

Fermingar kl. 11:00 og 13:30.

Boðið til máltíðar kl. 20:00. Við minnumst síðustu kvöldmáltíðar Jesú Krists með lærisveinum sínum með að neyta einfaldrar máltíðar við langborð í kirkjunni.

Í lok stundar verður allt borið út af altarinu, ljósin slökkt og við göngum út í nóttina.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Kór Grafarvogskikrju leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir

 

Föstudagurinn langi í Grafarvogskirkju:

Guðsþjónusta kl. 11:00.

Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur þjónar.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.

 

Páskadagur í Grafarvogskirkju – Kirkjuselinu og á Eir.

Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju að morgni páskadags kl. 08:00.

Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organistar Hákon Leifsson og Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Heitt súkkulaði og kaffi á eftir.

Hátíðarguðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 11:00.

Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Vörðumessa með upprisuívafi í Kirkjuselinu kl. 13:00.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.

Vox Populi leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Kaffi og súkkulaði á eftir.