Sunnudaginn 3. mars sem er æskulýðsdagurinn verður guðsþjónusta kynslóðanna í Grafarvogskirkju kl. 11:00.

Messa með litlum og stórum. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.

Barnakór Grafarvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen.

Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn.

Söngur, leikrit, biblíusögur og fleira skemmtilegt.

Veitingar að messu lokinni.

 

Vörðumessa er kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.

Við hlöðum vörður úr sögum okkar í lífinu. Kertaljósastund og máltíð.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar ásamt Hildi Maríu Sigurðardóttur guðfræðinema.

Vox Populi leiðir söng.

Organisti er Hákon Leifsson.

Umræðuefnið er vinátta.