Má bjóða þér að gerast vinur Grafarvogskirkju og eignast vini í kirkjunni um leið?
Ein leið er að skrá sig í hóopinn „Vinir Grafarvogskirkju“ á facebook. Önnur leið er að koma á viðburðinn, Vinakvöld í Grafarvogskirkju 29. nóvember kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19!

Í boði er glæsileg dagskrá með tónlist, gríni, glensi og avöru. Þá verða bundin vinabönd með ýmsum hætti og boðið upp á ljúffengar veitingar.

Fram koma, Katrín Halldóra Sigurðardóttir leik- og söngkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti, Vox Populi o.fl.

Í lok kvölds verður hægt að skrá sig til þátttöku í fjölbreyttum vinahópum án skuldbindingar.

Velkomin á vinakvöld!