Sunnudaginn 3. desember  kl. 18:00 fyrsta sunnudag í aðventu verður aðventuhátíð í Grafarvogskirkju.

Allir kórar kirkjunnar syngja:

Barna- og unglingakór Grafavogs, Vox Populi og Kór Grafarvogskirkju.

 

Gerður Kristín rithöfundur og ljóðskáld flytur hugleiðingu.

 

Fermingarbörn taka þátt í hátíðinni með lestri á ritningartextum.

Við munum öll syngja saman jólalög.

Falleg og huglúf stund í upphafi aðventu.

Verið hjartanlega velkomin!