Þriðjudaginn 19. ágúst verður haustlitaferð fyrir eldri borgara.

Farið er frá kirkjunni kl. 13:00 og áætluð heimkoma kl. 17:30.

Við heimsækjum Hernámssetrið að Hlöðum, skoðum safnið og heyrum sögur frá forstöðumanni þess.

Síðan förum við í Vatnaskóg. Fáum kaffi og meðlæti.

Verð er kr. 5,000.-

Skráning er í síma 587 9070 eða á netföngin: a) grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is b) kristin@grafarvogskirkja.is