Sunnudaginn 21. júní kl. 11:00 verður kaffihúsamessa í Grafarvogskirkju.
Kaffihúsamessurnar eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11:00 út ágústmánuð.
Messuformið er einfalt og notalegt andrúmsloft. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjónustuna.
Kaffi og meðlæti.

Á sama tíma verður útvarpað frá sumarguðsþjónustu í Grafarvogskirkju á Rás 1.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Félagar úr kórum Grafarvogskirkju leiða söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Velkomin í kirkju!