Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti Grafarvogssóknar leikur fjölbreytt verk á nýtt orgel Grafarvogskirkju.
Miðaverð er kr. 4500 og rennur allur ágóði í orgelsjóð. Einnig er hægt að kaupa pípur og reikningsnúmer orgelsjóðs er að finna á hér heimasíðu kirkjunnar.

Hið glæsilega orgel Grafarvogssóknar var vígt af biskupi Íslands 17. september  síðastliðinn en enn vantar nokkuð upp á í orgelsjóðinn.

Lára Bryndís er var ráðinn organisti við kirkjuna 1. apríl 2022. Hún er með kantorspróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar, B.Mus. í orgelleik/kórstjórn frá Tónlistarháskólanum í Árósum, Cand.Mus. í orgelleik/semballeik frá Tónlistarháskólanum í Árósum.

Velkomin á tónleika!