Þriðjudaginn 14. mars verður opið hús kl. 13-15 fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju.

Gestur opna hússins verður Kristján Sverrisson forstjóri Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.

Hann verður með fræðsluerindi um heyrn, heyrnarheilsu og ólíkar tegundir heyrnartækja.

Eins verður sungið, spjallað og annað til gamans gert.

Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir, djákni.

 

Kyrrðarstund er kl. 12.

Það er róleg stund með altarisgöngu, fyrirbænum og tónlist.

Að kyrrðarstund lokinni er boðið uppá léttan hádegisverð gegn vægu gjaldi.

 

Verið hjartanlega velkomin!