Guðsþjónusta er kl. 11:00 í Grafarvogskirkju.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar.

Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.

Organisti er Hákon Leifsson.

Barn verður skírt í messunni.

Á eftir verður boðið upp á veitingar í anda konudagsins.

 

Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.

Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Kristín Kristjánsdóttir djákni.

Undirleikari er Stefán Birkisson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

 

Kirkjuselið í Spöng

Vörðumessa verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í Spöng.

Þemað er: „Konur sem hafa haft áhrif á líf mitt“.

Við segjum frá konunum sem eru fyrirmyndir í lífi okkar. Við syngjum sálma og lög um konur og eftir konur.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og Kristín Kristjánsdóttir þjóna.

Vox Populi leiðir söng.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Á eftir messu þiggjum við veitingar í anda konudagsins.

Verið hjartanlega velkomin!