Fyrsta sunnudag í aðventu kl. 15:00 verður sænsk aðventuguðsþjónusta í Grafarvogskirkju.

Sænska félagið á Íslandi stendur hefur staðið fyrir guðsþjónustu á fyrsta sunnudegi í aðventu í yfir 40 ár.

Prestur er sr. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur Grafarvogssafnaðar og Lúsíukórinn syngjur.

Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi og piparkökur.

Verið hjartanlega velkomin!