Þriðjudaginn 8. nóvember verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju.

Opna húsið er kl. 13:00-15:00.

Margt er sér til gamans gert s.s. spilað, sungið og spjallað.

Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur kemur í heimsókn.

Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir, djákni.

 

Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.

Það er kyrrlát stund með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist.

Að kyrrðarstund lokinni er boðið uppá léttan hádegisverð gegn vægu gjaldi.

Verið öll hjartanlega velkomin!