Sunnudaginn 6. nóvember kl. 11:00 verður Allra heilagra messa í Grafarvogskirkju.

Við minnumst látinna og tendrum ljós til minningar um þau sem látist hafa undanfarið ár og verið jarðsungin af prestum Grafarvogssóknar.

Prestar safnaðarins þjóna.

Kristín Kristjánsdóttir djákni prédikar.

Kirkjukór Grafarvogskirkju ásamt Barna- og unglingakór kirkjunnar syngja.

Stjórnandi barnakórs er Svava Kristín Ingólfsdóttir.

Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Kaffi og meðlæti verður að athöfn lokinni.

Tekið verður við framlögum í Líknarsjóð kirkjunnar sem nýttur er til að styrkja þau sem eiga um sárt að binda fyrir jólin.

 

Sunnudagaskólinn verður á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.

Umsjón hefur Ásta Jóhanna Harðardóttir.

Undirleikari er Stefán Birkisson.

 

Selmesa verður kl. 13:00 í Kirkjuselinu í spöng.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.

Vox Populi leiðir söng.

Undirleikari er Lára Bryndís Eggertsdóttir

 

Verið öll hjartanlega velkomin!