Sunnudaginn 10. júlí kl. 11:00 verður útiguðsþjónusta þriggja safnaða við Reynisvatn.

Prestar frá söfnuðunum þremur Grafarvogi, Grafarholti og Árbæ þjóna.

Sr. Petrína Mjöll Þórðardóttir leiðir stundina.

Regína Ósk og Sigursveinn Þór sjá um tónlistina.

Léttar veitingar í boði að guðsþjónustu lokinni.

 

Verið öll hjartanlega velkomin!