Helgistund við Naustið kl. 10:30

Dagskráin hefst með helgistund við Naustið, gamalt bátalægi fyrir neðan kirkjuna kl. 10:30. Félagar úr björgunarsveitinni Ársæli munu koma siglandi inn voginn og standa heiðursvörð á meðan helgistundin stendur yfir.

Sr. Sigurður Grétar Helgason leiðir stundina.

Kaffihúsamessa kl. 11:00

Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar ásamt guðfræðinemanum Bjarka Geirdal Guðfinnssyni sem prédikar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og Hákon Leifsson er organisti.

Kaffi og meðlæti í boði.

Velkomin í kirkju!