Lára Bryndís Eggertsdóttir hefur verið ráðin organisti við Grafarvogssókn. Þar með verða tveir organistar í fullu starfi við sóknina.

Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar. Lára Bryndís flutti árið 2018 aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf. Einnig starfaði hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum. Fyrst eftir heimkomuna var Lára Bryndís organisti Hjallakirkju í Kópavogi, en starfar nú tímabundið við Neskirkju í Reykjavík uns hún tekur við stöðu organista og kórstjóra í Grafarvogskirkju. Meðfram organistastörfunum kennir Lára orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Lára hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum. Árið 2014 stóð hún fyrir tónlistarverkefninu „Ég heyrði þytinn frá vængjum þeirra“, þar sem sjö íslensk tónskáld sömdu orgelverk að beiðni Láru, og gaf út samnefndan geisladisk.

Lára Bryndís mun m.a. stjórna kórnum Vox Populi sem fyrst og fremst syngjur í Kirkjuselinu í Spöng auk þess að sinna hefðbundu starfi organista í samvinnu við Hákon Leifsson tónlistartsjóra Grafarvogssóknar.

Það er mikil tilhlökkun og fengur í að fá þennan færa organista til starfa við söfnuðinn ekki síst í ljósi þesss að í maí mánuði næstkomandi verður glæsilegt 33 radda snemm rómanstíkt 19 aldar pípuorgel sett upp í Grafarvogskirkju. Orgelið er smíðað af orgelsmiðnum Farago Attila. Ogelið hefur nútímalegt útlit sem hæfa mun kirkjunni og verður með fullkomnum stafrænum búnaði svo eitthvað sé nefnt.

Gert er ráð fyrir því að Lára Bryndis hefju störf í Grafarvogssókn í apríl mánuði og við bjóðum hana hjartanlega velkomna.