Á sunnudaginn verður send út helgistund kl. 11. Við kveikjum á Spádóms- og Betlehemskertum á aðventukransinum, íhugum merkingu kertanna, syngjum og biðjum. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir sér um stundina, tónlist er í höndum Stefáns Birkissonar, Rannveigar Iðunnar Ásgeirsdóttur og Nínu Hallgrímsdóttur.

Stundin verður send út á facebook og Instagram síðu kirkjunnar.