Þriðjudaginn 2. nóvember verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju.

Opna húsið er kl. 13:00-15:00.

Margt er til gamans gert;  sungið, spilað og spjallað.

Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti.

Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.

 

Kyrrðarstund hefst kl. 12:00.

Kyrrlát stund með fyrirbænum, altarisgöngu og tónlist.

Boðið er upp á léttar veitingar gegn vægu gjaldi að lokinni kyrrðarstundinni.

Allir hjartanlega velkomnir!