Þriðjudaginn 14. september hefst á ný eftir sumarhlé félagsstarf eldri borgara.

Opið hús verður í kirkjunni  kl. 13:00-15:30.

Í upphafi er söngstund inni í kirkjunni. Boðið er uppá handavinnu, spil og spjall fyrir þau sem það vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum.

Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir

 

Kyrrðarstund hefst kl. 12:00 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.