Í kvöld fimmtudag 4. mars hefjast aftur prjónakvöld í Grafarvogskirkju eftir langt hlé. Prjónakvöldið hefst klukkan 20:00. Prjónakvöldin munu vera annan hvern fimmtudag og alltaf á sama tíma þ.e. klukkan 20:00.

Umsjón hefur Guðrún Stella Björgvinsdóttir.

Þar sem ekki hefur verið hægt að halda prjónakvöld lengi vegna samkomutakmarkana er þetta mikið gleðiefni að geta aftur tekið upp þráðinn. Fátt er betra en góður félagsskapur og að sitja með prjóna.

Verið hjartanlega velkomin!