Sunnudaginn 28. febrúar verður Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli verður á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir, Hólmfríður Frostadóttir og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir.