Boðið verður upp á tvær altarisgöngur næstkomandi sunnudag 24. janúar. Sú fyrri verður kl. 11:00 og sú seinni kl. 12:00. Öllum sóttvarnarreglum verður fylgt m.a. leyfilegum hámarksfjölda. Nauðsynlegt er því að skrá sig annað hvort á netfangið grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is eða í síma 587 9070.

Einnig þarf að taka með sinn eiginn bolla / glas.

Verið hjartanlega velkomin!

Eins verður sunnudagaskólinn í streymi þennan sunnudag kl. 11:00.

Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir.