Næst komandi sunnudag 20. desember verður útvarps- og sjónvarpsmessa. Hún verður í útvarpinu á Rás 1 kl. 11:00. Eins í streymi á RUV 2 kl. 11:00. Kl. 15:00 verður messan í streymi í sjónvarpinu á RUV 1.

Prestar kirkjunnar þjóna. Barna- og unglingakór auk félaga úr öðrum kórum sjá um söng. Kórstjóri er Sigríður Soffía Hafliðadóttir. Organisti er Hákon Leifsson.