Sunnudaginn 13. desember verður í boði altarisganga í kirkjunni kl. 11:00, 12:00, 13:00 og 14:00. Skráning fer fram í síma 587 90 70 eða á netfanginu grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is. Fjöldi í hverjum hópi fer eftir samkomutakmörkunum þennan dag og gætt verður vel að öllum sóttvörnum. Þátttakendur eru beðnir um að koma með eigin bolla eða glas.