Sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00 verður streymt á Facebooksíðu kirkjunnar frá helgistund í Kirkjuselinu.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og félagar úr Vox Populi syngja.

Sunnudagskólinn verður í streymi á Facebooksíðu kirkjunnar kl. 09:30. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.