Vegna samkomutakmarkana getum við ekki haldið hefðbundna minningarguðsþjónustu í Grafarvogskirkju á allra heilagara messu 1. nóvember eins og venja er.

Þess í stað verður streymt frá minningarstundinni á Facebooksíðu kirkjunnar 1. nóvember kl. 17:00. Þar verður minnst látinna og sérstaklega þeirra sem látist hafa á árinu.

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt með því að kveikja á kerti heima til minningar um látna ástvini á meðan horft er á stundina.

Prestar kirkjunnar annast stundina ásamt organista og öðru tónlistarfólki.

Líknarsjóður

Af sömu ástæðu er ekki mögulegt að vera með kaffisölu til styrktar Líknarsjóði Grafarvogskirkju og viljum við því bjóða þér að styrkja sjóðinn. Fyrir jól og páska hefur líknarsjóðurinn styrkt einstaklinga og fjölskyldur sem búa við fátækt með það að markmiði að auka möguleika þeirra á að gera sér glaðan dag yfir hátíðarnar.

Reikningsnúmer Líknarsjóðsins er 0324-26-001109

Við vonum að þið njótið þessarar stundar með okkur!