Vegna samkomutakmarkanna og mikillar aukningar smita í samfélaginu munum við ekki bjóða upp á opið hús fyrir eldriborgara í Grafarvogskirkju í október. Okkur þykir þetta leitt en hlökkum líka mikið til að byrja aftur þegar við höfum náð tökum á þessu á ný.

Kirkjan er þó alltaf opin og prestar kirkjunnar eru við og bjóða upp á viðtöl bæði í síma og á staðnum.
Símanúmerið í kirkjunni er 587 9070.